Haf- og borgarístilkynningar 2010
Hér eru í tímaröð tilkynningar frá skipum um borgarísjaka ásamt upplýsingum um hafís frá Veðurstofu Íslands og úr ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar. Nýjustu tilkynningarnar eru efst.
Tilkynningar í tímaröð
30-08-2010 kl. 22:42 Tilkynning frá skipi
Skip tilkynnti um stóran borgarísjaka, sér hann í ratsjá í 12 sml fjarlægð, á stað 66°56'N 24°44,4'V, rekur hægt í V-átt. Þoka á svæðinu.
18-08-2010 kl. 12:10 Tilkynning frá skipi
Ísjaki á 66°12´67N 27°38´17V hreyfist suður 0,4 sml. Sést auðveldlega í ratsjá.
04-07-2010 kl. 14:30 Tilkynning frá skipi
Borgarísjaki á stað 66°25,6'N - 24°53,7'V og annan ekki eins stóran á 66°21,4N - 24°52,2V, sjást vel í radar. Litlir jakar eru á stangli umhverfis þá.
29-06-2010 kl. 12:39 Tilkynning frá skipi
Borgarísjakar í Þverál 66 58.294N 22 11.722V og annar í 66 56.730N 22 14.450V sjást vel í ratsjá.
22-06-2010 kl. 00:22 Tilkynning frá skipi
Sigldum í gegnum hafísspöng í kringum klukkan 23.30 21. júní. 66 49.33N 22 22.33V til 66 51.13N 22 09.41V. Þéttleiki 1-2/10, nokkuð stórir jakar inná milli (20-30m langir).
16-06-2010 kl. 13:30 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Síðustu daga hefur hafístunga borist með hafstraumi austur fyrir Hornstrandir. Þetta sést vel á gervitunglaradarmynd frá því í gærkvöldi 15. júní. Þéttur hafís mældist þá 40 sjómílur norður af Hornbjargi og 35 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Þegar slík hafístunga myndast þá fjölgar einnig borgarísjökum við húnaflóa og austur með ströndum norðurlands. Vert er að hafa allan varan á við þessar aðstæður.

14-06-2010 kl. 18:00 Veðurathugunarsöðin á Hrauni á Skaga
Stór borgarísjaki 10 til 11 sjómílur í norðvestur frá Skagatá.
14-06-2010 kl. 01:48 Tilkynning frá skipi
Skip tilkynnir um ísspöng 25 sjómílur norður af Horni. Ísspöngin liggur milli 66-59,5N - 022-24,0V og 66-54,4N - 022-23,5V. Þéttleiki 4/10 til 5/10. Íshröngl og stöku stærri ísjakar. Sést illa í ratsjá. Getur verið hættuleg skipum.
12-06-2010 kl. 03:06 Tilkynning frá skipi
Sólbakur/TFBC Pos 66°42.4'N - 024°15.6'V á austurleið. Eru að sigla í gegnum ísspöng. Um er að ræða hröngl með stöku stærri jökum. Spöngin liggur u.þ.b. N-S og er misþétt. Telur þéttleika geta verið 1/10 þar sem þéttast er. Er að verða kominn í gegnum þessa spöng en sýnist meira vera austar. Sést sæmilega í ratsjá a.m.k. ef sjór er sléttur eins og nú. Getur verið hættulegt í lélegu skyggni, sérstaklega skipum sem ekki eru styrkt til siglinga í ís. Telur rétt að vara við þessu því hann átti ekki von á ís á þessum stað. Veður: A3 og bjart.
23-05-2010 kl. 03:20 Tilkynning frá skipi
Komum að ísröndinni kl. 14:23 á stað 66°49'N og 23°38'V. Þaðan liggur ísinn suður í 66°41'N og 23°43'V. Teljum okkur vera komna suður fyrir ísröndina og erum að sveigja vestureftir.
20-05-2010 kl. 03:17 Tilkynning frá skipi
Kl. 02:00, komum að ísrönd á 67°28,22'N og 023°58,70'V. Þaðan liggur ísinn í 67°31'N og 023°35'V. Þaðan í 67°28,37'N og 023°25,15'V. Sést vel í ratsjá.
18-04-2010 kl. 20:56 Tilkynning frá skipi
Tunga ísspangar með þéttum ísjökum liggur frá 66°31N og 26°08V að 66°26N og 25°47V. Þaðan liggur tungan í 025°að 66°32N og 25°40V og frá þeim stað a.m.k. 6 sml norður.
Ísinn rekur í 250° ca. 1,8 sml á klst. Jakahröngl er með spangarröndinni.
07-04-2010 Landhelgisgæslan
Landhelgigæslan fór í ísflug nú rétt fyrir hádegi. Á meðfylgjandi mynd má sjá legu hafísrandarinnar. Hafísröndin var næst landi:
52 sml NV af Barða og
48 sml NV af Straumnesi.

05-04-2010 - kl. 19:00 Tilkynningar frá skipum um borgarísjaka
Þrjú skip tilkynntu um dreifða ísjaka á:
1. 67°21N og 21°40V
2. 67°27N og 21°16,7V
3. 67°21,7N og 21°47V
Jakarnir sáust illa eða ekki á radar.
04-04-2010 - kl. 13:30 Tilkynning frá skipi - Borgarísjakar
Stakir borgarísjakar voru á 67°24,6N og 23°04,6V og á 67°24,5N og 23°03,5V. Jakarnir sáust vel í radar.
10-02-2010 - Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug 10. febrúar. Ísröndin var næst landi 59 sml frá Straumnesvita og lá um eftirfarandi pkt.:
1. N66.43 W26.54
2. N66.38 W25.56
3. 66.41N W25.46
4. N66.53 W26.01W
5. 66.55 W25.33
6. N67.14 W24.26
7. N67.25 W24.25
8. N67.51 W22.43
9. N67.57 W22.21
10. N68.30 W22.09
11. N68.29 W19.44
og þaðan í N.

10-02-2010 - kl. 09:04 - Tilkynning frá skipi
Klukkan 06:35: komum að gisinni ísrönd á 66°11N og 26°59V. Þaðan lá hún í 66°13N og 26°44V og þaðan í NA.
21-01-2010 - kl. 16:15 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í hádeginu í dag (21. janúar, kl. 12:08) sést votta fyrir mjög dreifðum hafís í einungis um 13 sml fjarlægð NA af Hornbjargi. Hafísröndin út af Vestfjarðarmiðum stendur meira eða minna í stað í rúmlega 60 sml NV af Barða en þó vottar fyrir mjög dreifð hafís í rúmlega 50 sml NV af Straumnesi.
21-01-2010 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í gærkvöldi, 20. janúar kl. 22:34 sést dreifður hafís um 17 sml N af Hornbjargi. Þéttar ísspangir sem sést hafa á síðast liðnum dögum eru að leysast upp og vottar í kjölfarið fyrir dreifðum hafís á mjög útbreiddu svæði N af Húnaflóa.
Fram yfir helgi verður austan- og suðaustanátt ríkjandi á svæðinu og því ætti hafísinn af fjarlægjast enn frekar.
20-01-2010 - Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug miðvikudagskvöldið 20. janúar. Ísdreifar sáust á ratsjá N af Horni, þó ekkert sem hægt var að kalla samfellt. ísröndin var næst landi 50 sml NV af Straumnesi, 54 sml NV frá Barða og 67 sml NV frá Látrabjargi.

20-01-10 - kl. 11:50 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í gærkvöldi (19. janúar kl. 23:05) sést að hafísinn út af Vestfjörðum stendur nánast í stað. Hann mælist nú rúmlega 53 sml norðvestur af Barða og í rúmlega 48 sml norðvestur af Straumnesi. Gervihnattamyndin nær ekki yfir svæðið norðan við Húnaflóa, en samkvæmt ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar frá því í gær eru þéttar hafísspangir enn þá mjög nálægt Ströndum (uþb. 15 sml+).
19-01-2010 - Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug þriðjudaginn 19. janúar.
Komið var að ísbreið út af Húnaflóa. Um var að ræða þéttar ísspangir og gisinn ís á milli.
Veður á svæðinu var 12-15 m/s (25-30 hn) og léttskýjað.
Lega íssins út af Húnaflóa:

19-01-2010 - kl. 15:47 - Tilkynning frá skipi
Erum staddir á 66°27,8N og 21°57,7V. 600 faðmar í ísrönd. 2-3 sml NA mun þéttari ís.
Vindur: Austan 8-10 m/s.
19-01-2010 - kl. 12:30 - Tilkynning frá skipi
Erum staddir á 66°27,2N og 22°02,8V.
Sjáum ísrönd á 66°28,5N og 21°58,3V sem teygir sig skv. radar í 2-2,5 sml frá vestri til austurs. Ísröndin hreyfist í norðurátt.
Gott skyggni var á staðnum.
19-01-2010 - kl. 11:00 - Tilkynning frá skipi
Ísrönd liggur í ANA frá 66°27,3N og 21°58,5V.
19-01-2010 - kl. 11 - Hafísfrétt frá Litlu-Ávík á Ströndum
Jakinn sem var NNA af Reykjavneshyrnu er farinn og er nú á milli Veturmýrarnes og Selskers og er að hverfa sjónum frá Litlu-Ávík.
19-01-2010 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í gær kl. 12:02 sést að hafísröndin er um 50 sml NV af Barða og hafísspöng um 8,5 - 10 sml frá Hornströndum. Gervihnattamyndin er í góðu samræmi við niðurstöður úr ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar.
Næstu daga verða suðaustan og austanátt ríkjandi. Likur eru því á að ísinn fjarlægist landið.
Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát.
18-01-2010 - Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug á flugvél sinni mánudaginn 18. janúar. Sáust tvær ísspangir. Virðast þær hafa farið minnkandi og fjarlægst. Hafísinn var næstur landi um 8.5 sml, eins og kemur fram á myndum hér að neðan.


18-01-2010 - kl. 15:00 - Hafísfrétt frá Litlu-Ávík á Ströndum
Hafísjakinn sem tilkynnt var um í gær virðist á sömu slóðum og stendur þar sennilega á grunnsæfi. Staðsetning jakans er ca. 4 til 5 km NNA af Reykjaneshyrnu eða um 6 km A frá Selskeri.
17-01-2010 - kl. 17:00 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Hafísinn er nú mjög nærri Hornströndum, eins og sjá má af tilkynningnum sem hafa borist nú um helgina. Tvær spangir ná til lands og ekki er mælt með ferðum á svæðinu nema í björtu.
Næsta sólarhringinn verður fremur hæg SV átt á svæðinu og því er ekki búist við að hafísinn fjarlægist og eru jafnvel líkur á að hann komi enn nær vegna hafstrauma.
Á þríðjudaginn og dagana þar á eftir lítur út fyrir strekkings suðaustanátt og eru þá líkur á að hafísinn færist fjær.
17-01-2010 kl. 14:30 - Hafísfrétt frá Litlu-Ávík á Ströndum
Frekar lítill hafísjaki ca. 4-5 km NNA af Reykjavíshyrnu eða um 6 km A af Selskeri, sést illa nema í nokkurri hæð.
17-01-2010 - kl. 11:50 - Tilkynning frá skipi
Hafísrönd liggur frá stað um 2 sml N af Óðinsboða að stað 3,5 sml ASA frá Horni (66°26N og 21°16V). Þaðan liggur ísröndin til NNA eins og séð verður. Stakir jakar eru vestan við ísröndina.
Tvær spangir ná til lands á svæðinu frá Óðinsboða, önnur útaf Smiðjuvík um:
1. 66°23N og 21°59V
2. 66°25N og 22°11V.
Stakir jakar og dreifar eru sunnan og vestan við þessa línu.
Skyggni næst landi er 2-4 sml, en 0.5-1 sml til norðurs.
Hæg SV átt er á svæðinu.
Skipstjóri mælir gegn ferðum um svæðið nema í björtu.
16-01-2010 - Landhelgisgæslan
Laugardaginn 16. janúar fór þyrla Landhelgisgæslunnar í ískönnunarflug. Var flogið norður Húnaflóann og fyrir Vestfirðina.
Ísröndin var næst landi:
17,5 sml A af Horni
12,5 sml N af Drangaskeri
16 sml NNA af Þaralátursnesi.
Einn stakur ísjaki sást í Húnaflóanum á stað:
66°12,7N og 21°16,3V.
Komið var að ísröndinni út af Húnaflóa og henni fylgt til vesturs um eftirtalda staði:
1. 66°22,7N 21°18,2V og þaðan lá ísröndin réttvísandi í 60°
2. 66°23,6N 21°20,8V
3. 66°23,6N 21°27,4V
4. 66°25,5N 21°28,8V
5. 66°26,5N 21°41,9V og þaðan lá ísröndin í norður og norðaustur.
Ísinn var ca. 7-9/10 að þéttleika þar sem ísröndin var, en stöku smájakar vour um 1-2 sml út frá ísröndinni. Á svæðinu var þónokkur þoka eða u.þ.b. 1-2 sml skyggni og því ekki gott að gera nákvæma grein fyrir hversu langt ísinn dreifðist. Einnig sást ísinn mjög illa á radar þar sem útkoman á svæðinu truflaði raðdarskilyrðin.
Þegar flogið var frá ísröndinni í átt að Hornbjargi mátti sjá ísdreifar hér og þar á flugleiðinni að Horni. Ísdreifarnar voru sjáanlegir um eftirtalda punkta:
1. 66°26,7N 21°46,0W
2. 66°26,3N 21°49,6W
3. 66°26,4N 21°52,7W
4. 66°26,8N 21°55,0W
5. 66°26,5N 22°00,7W
6. 66°25,8N 22°00,7W
7. 66°27,5N 22°03,5W
8. 66°27,2N 22°07,4W
9. 66°28,0N 22°11,1W
10. 66°27,0N 22°12,5W
11. 66°26,2N 22°14,0W
12. 66°25,5N 22°14,7W
13. 66°26,6N 22°19,4W
Veður á svæðinu: NA 10-18 m/s (20-35 hútar) og rigning. Skýjafar fór stundum niður undir 300 FT. Lélegt skyggni.
15-01-2010 kl. 18:30 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í hádeginu í dag kl. 11:56 sést hafísröndin ágætlega.
Gisinn ís er um 15 sml frá Hornbjargi, en hafístunga teygir sig suður í átt að Ströndum og hefur færst aðeins nær landi frá því í gær og er nú um 14 sml frá landi. Hafístunga er svo um 21 sml frá Straumnesi. Takið eftir að einnig vottar fyrir mögulegum stökum jökum út frá Barða.
Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát.
14-01-2010 kl. 12:30 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í gærkvöldi (13. janúar) kl. 22:45 sést að gisinn ís er um 12 sml frá Hornbjargi og ístunga með þéttum ís er um 17 sml út frá Geirólfnúpi. Ístungan sem teygir sig í átt að Straumnesi hefur fjarlægst og er nú 24 sml frá landi.
Austlæg átt verður í dag og á morgun, en á laugardag norðlæg átt. Á sunnudag og fram á mánudag er búist við suðvestanátt, en eftir það er útlit fyrir að austlæg átt verði ríkjandi.
Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát.
14-01-2010 kl. 01:45 - Tilkynning frá skipi
Ísrönd liggur 2,5 sml í N frá stað 66°34,76N og 24°55,04V.
13-01-2010 kl. 11:30 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því í gær kl. 14:00 sést ístunga sem teygir sig í átt að Straumnesi og er um 13 sml frá landi. Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát.
12-01-2010 kl. 18:15 - Tilkynning frá skipi
Við silgdum meðfram ísrönd um eftirtalda punkta:
1. 66°53N og 19°58V
2. 66°45N og 20°44V
3. 66°37N og 20°54V
Þaðan lá ísröndin í 260°.
12-01-2010 kl. 15:30 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Gervihnattamyndirnar hér að neðan sýna hafísröndina í gær á hádegi (neðri myndin) og í dag á hádegi (efri myndin). Hafísröndin er næst landi 20 sml VNV af Straumnesi og 20 sml N frá Horni. Stakir jakar og rastir geta þó verið nær landi.
Næstu daga verður austlæg átt rikjandi og því er búist við að ísinn reki vestur á bóginn.
Þriðjudagur 12. janúar kl. 11:51
Mánudagur 11. janúar kl. 12:15
11-01-2010 kl. 19:00 - Tilkynning frá skipi
Ísspöng er á 66°25N og 25°09V og liggur hún í NA. Silgdum meðfram spönginni frá 66°33N og 24°53V og náði hún að 66°36N og 24°45V. Ísspönginn liggur upp Djúpálinn, en þar er gisinn ís. Annars staðar á svæðinu er um þéttari ís að ræða.
10-01-2010 - Landhelgisgæslan
Sunnudaginn 10. janúar 2010 fór þyrla Landhelgisgæslunnar í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum.
Ísröndin var næst landi á:
53 sml VNV af Barða.
25 sml NV frá Straumnesi.
26 sml NNV frá Horni.
kl. 13:49 á 66°24,8N og 25°46,4V var komið að ísröndinni og henni fylgt til NA um eftirtalda staði:
1. 66°25N-025°46W
2. 66°26N-025°47W
3. 66°34N-024°39W
4. 66°41N-024°24W
5. 66°46N-024°32W
6. 66°43N-024°04W
7. 66°47N-023°53W
8. 66°46N-023°47W
9. 66°54N-023°30W
10. 66°51N-022°59W
11. 66°54N-022°40W
12. 67°15N-021°54W
13. 67°28N-021°56W
14. 67°05N-021°40W
15. 67°00N-021°28W
16. 67°16N-020°53W
Var ísinn alveg samfrosinn en sjá mátti vakir fyrir innan hann inn á milli. Ísfluginu var hatt á stað
66°59.7N-021°30.9V og lá ísröndin til NA.
Á svæðinu var SSV átt og 20 hnútar (~10 m/s).

09-01-2010 kl. 02:00 - Tilkynning frá skipi
Komum í íshrafl á 67°24N og 20°32V. Sigldum út úr þessu á stað 67°20N og 20°21V. Stöku jakar innanum sem sjást vel í radar.
08-01-2010 kl. 17:10 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamynd frá því kl. 12:16 sést að hafísinn er um 19 sml VNV af Straumnesi og um 27 sml NV af Horni. Ísspangir og rastir geta verið nær landi.
Fram á þriðjudag er búist við sunnan- og suðvestanátt á svæðinu og eru því líkur á að hafísröndin færist nær Vestfjörðum og ógni jafnvel siglingarleiðinni frá Barða að Straumnesi. Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát.
Á þriðjudaginn lítur út fyrir austlæga átt og þá ætti ísinn að færast í vestur og fjarlægjast smám saman.
08-01-2010 kl. 11:45 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Á gervihnattamyndinni frá því í gærkvöldi (7. janúar) kl. 22.43 sést hafísröndin ágætlega. Ísröndin virðist vera um 22 sml NA af Horni og um 20 sml NV af Straumnesi. Vegna skýjahulu er erfitt að greina hvort að einhver ís liggi nær landi.
Sjófarendur eru beðnir að fara að öllu með gát.
08-01-2010 kl. 00:00 - Tilkynning frá skipi
Erum á 67°24N og 23°33V. Höfum silgt í kvöld meðfram ísrönd um eftirtalda punkta:
1. 67°14N og 21°35V
2. 67°15N og 22°00V
3. 67°22N og 22°35V
4. 67°18N og 23°28V
5. 67°30N og 23°24V
Erum nú staddir í einskonar flóa, þar sem ís er sunnan og norðan við okkar. Erum á siglingu norðaustur og austnorðaustur út úr ís-flóanum.
07-01-2010 kl. 18:00 - Tilkynning frá skipi
Höfum silgt með þéttri ísrönd frá 67°10N og 21°13V af stað 67°18N og 21°53V. Ísröndin er samföst og þétt, engin klakadreif.
07-01-2010 kl. 17:20 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Hafísinn nálgast nú mjög Vestfirði. Næstu daga verður suðvestan- og sunnanátt á svæðinu og hætt er við að siglingarleiðin við Vestfirði lokist á næstu dögum. Gera má ráð fyrir að hafísröndin verði um 10-12 sml frá landi á morgun (8. janúar) og ógni siglingaleið frá Barða norður á Straumnes.
Á þriðjudag er búist við að vindátt verði austlæg, en þá mun hafísinn reka til vesturs og fjarlægjast.
07-01-2010 kl. 15:00 - Tilkynning frá skipi
Erum við ísrönd á 66°40N og 21°48V. Ísröndin liggur i NA og hefur hreyfst talsvert í austur síðasta sólarhringinn.
07-01-2010 kl. 03:00 - Tilkynningar frá skipi
Ísrönd er frá 66°19N og 25°09V og liggur í NA.
06-01-2010 - Landhelgisgæslan
Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug úti fyrir Vestfjörðum og norður af Horni. Teknir voru punktar af ísröndinni. Ekki sáust neinir borgarísjakar né stakir ísjakar í fluginu. Ísröndin var næst landi:
18 sml NV af Barðanum.
20 sml NV af Straumnesi.
22 sml NA af Horni.
Aðalrönd íssins lá í gegnum eftirtalda punkta og að sjá var ísinn samfrosta 10/10:
1. 66°13,7‘N og 025°35,7‘V
2. 66°24,0‘N og 024°26.0‘V
3. 66°50,1‘N og 023°44,1‘V
4. 67°03,1‘N og 023°31,0‘V
5. 67°00,7‘N og 023°11,3‘V
6. 66°58,7‘N og 022°39,7‘V
7. 66°55,8‘N og 022°23,5‘V
8. 66°47,5‘N og 021°59,0‘V
9. 66°55,6‘N og 022°01,7‘V (Austasti punktur sem við mældum)
Út frá aðalrönd íssins lágu ís-totur eins og sést á teikningunni (hér að neðan).
Syðst lá samfrosta ís 10/10 og náði hann SA að stöðum:
1. 66°12,9‘N og 024°47,3‘V
2. 66°14,1‘N og 024°42,2‘V
Svo lá gisin ís-tota 4-6/10 frá aðalrönd íssins eins og sést á teikningunni í SA að stöðum:
1. 66°16,0‘N og 24°20,1‘V
2. 66°22,3‘N og 24°12,0‘V
Svo lá þéttur ís 7-9/10 í suður frá aðalrönd íssins eins og sést á teikningunni (það var mjög ógreinilegt hvar totan kom við aðalísröndina). En syðst náði þessi tota á stað:
1. 66°38,5‘N og 023°50,0‘V

2. 66°40,0‘N og 023°42,0‘V
Við aðalísröndina og við ís-toturnar voru ísdreifar 1/10 á víð og dreif en ekki 100% skráðar.
Veður á svæðinu: Norðan 10-15 hnútar (~5-8 m/s), alskýjað og gott skyggni.
06-01-2010 kl. 18:00 - 22:00 - Tilkynningar frá skipum
Eftirfarandi tilkynningar bárust í gærkvöldi um hafísrönd:
1. kl:18:00 - Ísrönd er á 65°33N og 27°24V og liggur í A og NA.
2. kl. 21:00 - Höfum silgd meðfram ísrönd frá:
65°34N og 27°08V að 65°40N og 26°18V.
06-01-2010 kl. 12:24 - Tilkynning frá skipi
Skip kom að ísrönd á 65°47N og 28°58V og silgdi meðfram röndinni frá 65°51N og 28°30V að
65°52N og 28°16V. Ísinn hreyfist hratt í austur átt.
05-01-2010 kl. 21:21 - Tilkynning frá skipi
Ísrönd er á 66°10N og 25°10V, sem teygir sig í NA og V frá staðsetningunni. Ísinn hreyfist hratt í austur átt.
05-01-2010 kl. 18:15 - Tilkynning frá skipi
Skip statt á 66°16,36N og 24°57,8V sigldi meðfram ísrönd. Um þéttan ís er að ræða og sést hann vel í radar. Ísinn hreyfist í austur átt.
05-01-2010 kl. 17:00 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Meðfylgjandi gervihnattamynd er frá því kl. 12:11 í dag (5. janúar). Ísröndin sést vel og er hún um 30-40 sml V og NV af Vestfjörðum. Ísröndin er næst landi um 24 sml N af Kögri.
Sem fyrr eru sjófarendur beðnir um að fara að öllu með gát á svæðinu.
05-01-2010 kl. 11:30 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Eftir að hafa kannað vel gervihnattamyndir frá því í gær þá bendir allt til þess að það sem var talið líkleg ístunga, sé í raun ský.
Gervihnattamynd frá því fyrr um daginn, þ.e. 4. jan. kl. 10:59 sýnir ísröndina vel (sjá mynd hér að neðan). Þar sést að ísröndin er um 30 til 40 sml V og NV af Vestfjörðum. Ísspangir og rastir geta þó verið nær. Einnig er rétt að minna á að ísröndin er um 18 sml N af Hælavíkurbjargi.
Næstu daga verður vestlæg átt ríkjandi og því má gera ráð fyrir að ísröndin færist nær landi. Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát á svæðinu.
04-01-2010 kl. 16:45 - Upplýsingar frá Veðurstofunni
Hafís er nú nálægt landi, eða um 30 sml NV af Straumnesvita og um 18 sml N af Hælavíkurbjargi (skv. tilkynningu hér að neðan). Á hitamynd, má sjá tungu VNV af Bjargtöngum sem líklega er ístunga. Næst landi er hún um 13 sml frá Bjargtöngum.
Næstu daga verður vestlæg átt ríkjandi og því getur ísinn færst nær landi.
Sjófarendur á svæðinu eru beðnir um að fara að öllu með gát.
04-01-2010 kl. 00:00 - Tilkynning frá skipi
Skip tilkynnti um ísrönd á 66°29,19N og 24°59,2V. Ísröndin teygði sig í ANA eða í 45°.
03-01-2010 kl. 23:45 - Tilkynning frá skipi
Skip tilkynnti um ísrönd á 66°50N og 22°36V. Ísröndin teygði sig ANA og hreyfðist hratt í A átt. Ísröndin sést vel í radar.
03-01-2010 kl. 00:50 - Tilkynning frá skipi
Skip tilkynnti um hafís: Komum inn í ísspöng á stað 66°57N og 22°58V og liggur spöngin suður í 66°55N og 22°50V. Komum út úr ísnum á stað 66°58N og 22°42V. Þetta voru nokkrar spangir, ekki mjög þéttar en stórir klakar inn á milli.
Annað skip statt á 66°42N og 23°19V telja sig sjá ísspöng fram undan.



