Sýnaraðir

Söfnunarstaðir og efnisþættir

Nýsprottinn fífill
skærgulur fífill og grasstrá
Ljósmynd: Sigurður Thorlacius

Írafoss í Grímsnesi:

  • Dagleg sýni af úrkomu; andrúmslofti og svifryki til brennisteins- og seltumælinga

Mælireitur Veðurstofunnar við Bústaðaveg:

  • Vikuleg sýni af úrkomu til þungmálmamælinga
  • Mánaðarsýni af úrkomu til brennisteins- og seltumælinga
  • Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Alþjóðakjarnorkumálastofnunina, IAEA, til mælinga á geislavirkni
  • Stöðug söfnun á frjókornum sumarhelming ársins fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands
Bláberjalyng í vætutíð
Bláberjalyng í vætu.
Ljósmynd: Guðrún Pálsdóttir

Litla-Skarð í Borgarfirði:

  • Mánaðarsýni af úrkomu vegna vistfræðirannsókna í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands og fleiri stofnanir

Mjóanes við Þingvallavatn:

  • Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Vegagerðina til mælinga á niturákomu vegna mögulegrar vegalagningar um Gjábakka

Stórhöfði í Vestmannaeyjum:

  • Vikuleg sýni af úrkomu til þungmálmamælinga
  • Hálfsmánaðarsýni af svifryki til þungmálmamælinga
  • Hálfsmánaðarsýni af lofti og úrkomu til greininga á þrávirkum lífrænum efnum

Stórhöfði í Vestmannaeyjum - erlendar rannsóknir:

  • Símæling á ósoni við jörð
  • Augnablikssýni af andrúmslofti á glerkúta vikulega til mælinga á CO2, CH4, CO, H2, SF6, N2O, ásamt samsætunum 13C og 18O í koltvísýringi og samsætunni 13C í metani
  • Klukkustundarsöfnun af andrúmslofti á álkúta viku- eða hálfsmánaðarlega vegna sömu efna
  • Sólarhringssöfnun af svifryki í hafátt vegna mælinga á lífrænum brennisteini frá þörungum eða sólarhringssöfnun af svifryki úr landátt vegna rannsókna á foki af jökulsöndum
  • Þriggja mánaða söfnun án dælingar á þrávirkum lífrænum efnum úr andrúmslofti
  • Heils árs söfnun án dælingar á þrávirkum lífrænum efnum úr andrúmslofti

Svartárkot (áður Hveravellir) og Reykjavík (áður Rjúpnahæð):

Írafoss og Reykjavík (mælireitur VÍ), áður einnig Rjúpnahæð:

  • Mánaðarsýni af úrkomu fyrir Geislavarnir ríkisins til mælinga á geislavirkni

Mælireitur Veðurstofu Íslands
Bláberjalyng í vætu.
Mælireiturinn við Bústaðaveg í Reykjavík. Ljósmynd: Jóhanna M. Thorlacius 18. desember 2007

Veðurstofan vaktar ekki loftgæði í Reykjavík en það gerir Umhverfisstofnun.

 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.