Heldur dregur úr jarðskjálftavirkni eftir Suðurlandsskjálftann

Jarðskjálftavirkni í Ölfusi
Jarðskjálftavirkni í Ölfusi

5.6.2008

Síðasta sólarhringinn hefur dregið talsvert úr eftirskjálftavirkninni eftir Suðurlandsskjálftann þann 29. maí.

Enn mælast samt nokkrir skjálftar á klukkustund. Um 120 skjálftar hafa mælst frá því klukkan 21 í gærkvöldi, þeir stærstu á stærðarbilinu 2 - 2,5.

Mest er virknin á aðalsprungunni, Kross-sprungunni, og á svæðinu þar til vesturs, en einnig hafa mælst nokkrir skjálftar undir Ingólfsfjalli og austan þess, þ. e. um 5 - 6 km NNA af Selfossi.

Áfram er fylgst með virkninni.

Sjá má nánari útskýringar á meðfylgjandi mynd með því að tvísmella á hana en þá stækkar hún.

 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.