Laus störf
Eftirsóknarverður vinnustaður
Veðurstofa Íslands er öflug stofnun og áhugaverður vinnustaður þar sem stundaðar eru víðtækar rannsóknir ásamt vöktun og veitt heildstæð þjónusta varðandi spár og viðbrögð við náttúruvá.
Laus störf á vegum ríkisstofnana eru auglýst á Starfatorgi. Um þessar mundir eru þrjú störf laus til umsóknar hjá Veðurstofu Íslands:
Sérfræðingur í verkefnastjórnun
Vegna aukninga á erlendum samstarfsverkefnum óskar Veðurstofa Íslands eftir að ráða sérfræðing í verkefnastjórnun á fjármála- og rekstarsvið. Hlutverk sérfræðings í verkefnastjórnun er m.a. að hafa umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum innlendra- og erlendra verkefna; stýra, skipuleggja og samræma verkefni auk þess að sinna skýrslugjöf og samningagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði raungreina eða viðskiptafræði
- Háskólapróf í verkefnastjórnun eða farsæl reynsla á því sviði
- Þekking og reynsla af verkbókhaldi, verkáætlunum og verkskýrslum
- Hæfni í mannlegum samskipum og teymisvinnu
- Góð færni í Excel eða sambærilegum töflureiknum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Hafa gott vald á íslensku og ensku
- Æskileg reynsla af stýringu innlendra- og erlendra rannsóknarverkefna
Um er að ræða fullt starf og fara launin eftir kjarasamningi ríkisins og viðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Karlsdóttir, framvæmdastjóri Fjármála- og rekstrarsviðs, sími 5226000, og Borgar Æ. Axelsson mannauðsstjóri, sími 5226000.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2010. Umsóknir sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum skulu berast Borgari Ævari Axelssyni, Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík eða í tölvupósti á netfangið borgar@vedur.is merkt "sérfræðingur í verkefnastjórnun".
Sérfræðingar
Í janúar 2009 var stofnuð ný Veðurstofa Íslands með sameiningu eldri Veðurstofu Íslands og Vatnamælinga. Þar starfa rúmlega 250 manns víðsvegar um landið. Auk þess að taka yfir verkefni eldri stofnana hefur Veðurstofa Íslands umfangsmeira hlutverk í vöktun og rannsóknum en forverar hennar, m.a. hlutverkum tengdum náttúruvá, loftslags- og vatnafarsrannsóknum. Vegna fjölbreyttara hlutverks og aukningar í innlendum og erlendum samstarfsverkefnum auglýsir Veðurstofa Íslands eftir tveimur sérfræðingum til að efla rannsóknir á vatnafari á Úrvinnslu- og rannsóknasviði.
Á Úrvinnslu- og rannsóknasviði Veðurstofu Íslands starfa um 35 manns m.a. við gagnavinnslu og rannsóknir á helstu eðlisþáttum jarðar. Má þar nefna verkefni er tengjast veður- og loftslagsrannsóknum, jökla- og vatnafræði, jarðskjálftafræði og ofanflóðum.
Sérfræðingur á sviði grunnvatnsrannsókna
Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi til starfa við grunnvatnsrannsóknir. Í boði er spennandi, krefjandi og fjölbreytt framtíðarstarf.
Hlutverk:
- Móta stefnu grunnvatnsrannsókna innan stofnunarinnar.
- Stuðla að samþættingu grunnvatnsrannsókna við önnur verkefni m.a. á sviði vatnafræði.
- Fagleg stýring verkefna á sviði grunnvatnsrannsókna.
- Fagleg vinna í verkefnum tengdum grunnvatnsrannsóknum.
Hæfniskröfur:
- Háskóla- og framhaldsnám á sviði raunvísinda eða verkfræði.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
- Góð færni í íslensku og ensku.
- Farsæl reynsla í verkefnastjórnun er kostur.
Um er að ræða fullt starf og fara launin eftir kjarasamningi ríkisins og viðeigandi stéttarfélags.
Sérfræðingur á sviði vatnafræði
Veðurstofa Íslands leitar að sérfræðingi til starfa við rannsóknir og úrvinnslu vatnafræðilegra gagna. Í boði er krefjandi og fjölbreytt framtíðarstarf þar sem unnið er að rannsóknum á vatnafari.
Hlutverk:
- Umsjón faglegrar þróunar vatnafræðilegrar líkangerðar, bæði hvað varðar aðferðafræði og úrvinnslu.
- Leiðandi hlutverk í vatnafræðilegum verkefnum.
- Vinna við vatnafræðilega líkangerð.
- Tímaraðaúrvinnsla.
- Úrvinnsla vatnafræðigagna og skýrslugerð.
- Þátttaka í mótun stefnu í vatnafarsrannsóknum og mælingum.
Hæfniskröfur:
- Háskóla- og framhaldsnám á sviði raunvísinda eða verkfræði.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
- Góð færni í íslensku og ensku.
- Góð tölvukunnátta, þ.á.m. forritunarkunnátta.
- Farsæl reynsla í verkefnastjórnun er kostur.
Um er að ræða fullt starf og fara launin eftir kjarasamningi ríkisins og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um störfin veita Jórunn Harðardóttir, framkvæmdastjóri Úrvinnslu- og rannsóknarsviðs, s. 8628323, og Borgar Æ. Axelsson mannauðsstjóri, s. 8990201.
Umsóknarfrestur beggja starfa er til og með 11. júlí 2010.
Umsóknir sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum skulu berast Borgari Æ. Axelssyni, Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík eða í tölvupósti á netfangið borgar@vedur.is merkt „
Sérfræðingur á sviði grunnvatnsrannsókna“
eða „
Sérfræðingur á sviði vatnafræði“
eftir því sem við á.



