Veðurstofa Íslands 90 ára

Hús Veðurstofu Íslands

13.2.2010 : Veðurstofa Íslands 90 ára

Nú fyrir skemmstu varð Veðurstofa Íslands 90 ára, en hún telst hafa tekið til starfa 1. janúar 1920. Starfsstöðvar Veðurstofu Íslands í Reykjavík eru á Bústaðavegi 9 og Grensávegi 9. Ennfremur rekur stofnunin útibú á Ísafirði þar sem einkum er fengist við ofanflóðaverkefni og gerðar eru veðurathuganir og fleiri mælingar í starfsstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þá rekur stofnunin athugunarkerfi og mælistöðvar um allt land. Lesa meira
 
90ara_051-(19)2

27.7.2010 : Miðlun II

Veðurupplýsingar og veðurspár eru lesnar í hljóðvarpi og sýndar og skýrðar í sjónvarpi. En ítarlegustu og nýjustu upplýsingarnar um veður, jarðhræringar, ofanflóð, vatnafar, loftslag, hafís og mengun eru ávallt aðgengilegar á vef Veðurstofunnar. Þar er einnig margvíslegur sígildur fróðleikur um sama efni. Lesa meira
 
mælar á grónu landi

28.6.2010 : Írafoss - brennisteinsmælingar

Daglegum sýnum af úrkomu, andrúmslofti og svifryki hefur verið safnað á Írafossi í Grímsnesi síðan árið 1980 og þar áður á Rjúpnahæð frá 1972 í þeim tilgangi að vakta súra úrkomu. Veðurstofan hefur frá upphafi séð um að senda upplýsingar um dagleg loft- og úrkomusýni frá Íslandi í evrópskan gagnagrunn, EMEP. Efnagreiningarnar hafa verið gerðar á Keldnaholti. Lesa meira
 
Íslandskort 17. júní 2009

10.6.2010 : Miðlun rita

Veðurstofan hefur frá upphafi miðlað til almennings upplýsingum um veðurfar, jarðskjálfta og önnur fagsvið stofunarinnar. Nú er þessi miðlun að langmestu leyti rafræn, einnig útgáfa rita sem áður birtust eingöngu í prentuðu máli. Lesa meira
 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.